Fast tilboð. Engar óvæntar viðbætur.
Þrjú þrep eftir því hvað fyrirtækið þitt þarf — og valfrjálst viðhald ef þú vilt hafa mig með áfram.
Grunnsíða
frá 89.000 kr
Ein síða sem segir allt sem skiptir máli. Greitt einu sinni — engin mánaðargjöld.
- Hönnun sniðin að fyrirtækinu þínu
- Þjónusta, verðskrá, opnunartímar og myndir
- „Bóka tíma“-takki tengdur við bókunarkerfið þitt
- Virkar fullkomlega í síma
- Tilbúin á um viku
Stærri síða
frá 129.000 kr
Fyrir fyrirtæki sem vilja meira efni og fleiri kafla.
- Allt sem fylgir grunnsíðu
- Myndasafn úr þinni vinnu
- Gjafabréf
- Fyrir og eftir
- Umsagnir viðskiptavina
- Ítarlegri kafli um fyrirtækið
Sérverkefni
frá 179.000 kr
Verð eftir umfangi — ég geri tilboð sniðið að verkefninu.
- Margar undirsíður
- Tvítyngd síða, íslenska og enska
- Virkt samskiptaform
- Sérlausnir eftir þörfum
Viðhald
7.500 kr/mánuði
Valfrjálst — engin binding.
- Smábreytingar þegar þú þarft
- Uppfærður texti, verð og opnunartímar
- Ég er til taks ef eitthvað þarf að laga
Svona virkar þetta
Þú hefur samband
Segðu mér frá fyrirtækinu þínu — símtal eða skilaboð duga.
Ég hanna og smíða
Helmingur greiðist við pöntun og síðan er tilbúin á viku.
Síðan fer í loftið
Þú skoðar, ég laga það sem þarf — og restin greiðist við afhendingu.
Algengar spurningar
Hvað með lén og hýsingu?
Þú átt lénið þitt sjálf(ur) — það kostar um 2–3.000 kr á ári. Ég sé um alla uppsetningu og hýsinguna sjálfa.
Hvenær borga ég?
Helmingur við pöntun, restin þegar síðan er komin í loftið.
Get ég breytt síðunni seinna?
Já — með viðhaldi á 7.500 kr á mánuði sé ég um breytingar fyrir þig.