Hæ, ég heiti Garðar.
Ég er 16 ára og bý í Garðabæ. Ég byrjaði að læra vefsíðugerð upp á eigin spýtur og hef síðan verið að byggja upp sýnishorn og verkefni fyrir fyrirtæki á svæðinu.
Ég vinn hratt en vandlega, held hlutunum einföldum og rukka fast verð svo það komi ekkert á óvart. Þú talar beint við mig frá fyrstu skilaboðum þar til síðan fer í loftið.
Ef þig vantar heimasíðu, eða þú ert bara forvitin(n) um hvað þetta myndi kosta, sendu mér línu.