Garðar.

Vefsíða sem passar
við fyrirtækið þitt.

Fast verð, skýrt ferli og engin óvænt gjöld.

Grunnsíða

frá89.000 kr.

Ein síða sem segir allt sem skiptir máli.

  • Hönnun sniðin að fyrirtækinu þínu
  • Þjónusta, verðskrá, opnunartímar og myndir
  • Bókun eða samband eftir þörfum
  • Virkar vel í síma
  • Tilbúin á um viku
Stærri síðaVinsælast

frá129.000 kr.

Fyrir fyrirtæki sem vilja meira efni og fleiri kafla.

  • Allt sem fylgir grunnsíðu
  • Meira efni og fleiri kaflar
  • Myndasafn
  • Gjafabréf eftir þörfum
  • Fyrir og eftir
  • Umsagnir viðskiptavina
  • Ítarlegri fyrirtækjakynning
Sérverkefni

frá179.000 kr.

Verð eftir umfangi, tilboð sniðið að verkefninu.

  • Margar undirsíður
  • Íslenska og enska
  • Virkt samskiptaform
  • Sérlausnir eftir umfangi
Viðhald

7.500 kr./ mánuði

Valfrjálst, engin binding.

  • Smábreytingar
  • Textauppfærslur
  • Verð
  • Opnunartímar
  • Myndir
  • Aðstoð þegar þarf

Hvað er innifalið.

Endanlegt verð fer eftir umfangi verkefnis og er alltaf staðfest áður en vinna hefst.

Tilboð
Verðin hér að ofan eru upphafsverð. Ég geri tilboð fyrir þitt verkefni og það verð stendur, nema þú biðjir síðar um viðbætur sem voru ekki hluti af samkomulaginu.
Breytingar
Minniháttar breytingar í lokaferlinu eru innifaldar samkvæmt umfangi verkefnis. Ný hönnun frá grunni eftir að hönnun hefur verið samþykkt telst nýtt verkefni.
Texti
Viðskiptavinur leggur almennt til endanlegan texta nema annað sé samið.
Myndir
Viðskiptavinur leggur til myndir af starfseminni. Þú þarft að hafa heimild til að nota þær myndir sem þú sendir mér.
Lén
Þú átt lénið sjálf eða sjálfur og greiðir árgjaldið beint til lénaskráningar. Ég aðstoða við uppsetninguna, en lénið er ekki innifalið í verðinu.
Hýsing
Síðurnar eru hýstar hjá Netlify. Eins og ég set þær upp rúmast þær innan ókeypis þreps Netlify, en umfangsmikil verkefni geta kallað á greitt þrep.
Þjónusta þriðja aðila
Lén, hýsing og aðrar þjónustur frá þriðja aðila geta verið sérkostnaður eftir verkefni. Ég læt þig vita fyrirfram ef eitthvað slíkt á við.
Viðhald
Viðhald er valfrjálst og kostar 7.500 kr. á mánuði. Því fylgir engin binding og hægt er að hætta hvenær sem er.

Öll verð eru í íslenskum krónum. Nánari skilmálar

Svona virkar þetta.

01

Við ræðum hvað fyrirtækið þarf.

02

Ég set saman hönnunina.

03

Þú ferð yfir síðuna.

04

Við gerum loka breytingar.

05

Síðan fer í loftið.

Viltu sjá hugmynd fyrst?

Ég get sett saman forsíðusýnishorn fyrir fyrirtækið þitt án endurgjalds.

Fá ókeypis sýnidæmi