Persónuvernd.
Uppfært í september 2026
Hverju er safnað
Þessi vefsíða safnar aðeins þeim upplýsingum sem þú sendir sjálf eða sjálfur í gegnum fyrirspurnarformið: nafni, fyrirtæki, netfangi, símanúmeri ef þú gefur það upp, slóð á núverandi heimasíðu ef þú gefur hana upp, og þeim skilaboðum sem þú skrifar.
Engin skráning er á heimsóknum umfram það sem kemur fram hér að neðan um vefþjón.
Fyrirspurnarformið
Formið er keyrt í gegnum Netlify Forms. Þegar þú sendir fyrirspurn eru upplýsingarnar vistaðar hjá Netlify og mér sendur póstur um að fyrirspurn hafi borist.
Netlify keyrir sjálfvirka ruslpóstsíu á innsendingar. Formið inniheldur einnig falinn reit sem er ætlaður vélmennum, ekki fólki.
Tölvupóstur
Þegar við eigum í samskiptum með tölvupósti geymist sá póstur í pósthólfinu mínu hjá Google (Gmail).
Vefþjónn
Netlify, sem hýsir síðuna, skráir tæknilegar upplýsingar um beiðnir í vefþjónsskrár, til dæmis IP-tölu og vafraupplýsingar. Þetta er hluti af venjulegum rekstri og öryggi vefþjóns.
Vefkökur og mælingar
Þessi síða setur engar vefkökur.
Engin greiningarþjónusta er uppsett á síðunni. Það er engin Google Analytics, enginn samfélagsmiðlapixill og engin auglýsingamæling.
Leturgerðir eru hýstar á síðunni sjálfri. Þess vegna sendir vafrinn þinn engar beiðnir til utanaðkomandi leturþjónustu þegar þú skoðar síðuna.
Hversu lengi
Fyrirspurnir geymi ég á meðan þær eiga við og á meðan samskipti okkar standa yfir. Þú getur hvenær sem er beðið um að fyrirspurn þín verði eytt.
Vinnsluaðilar
Netlify sér um hýsingu síðunnar og móttöku fyrirspurna.
Google (Gmail) sér um tölvupóst.
Engum upplýsingum er miðlað til annarra aðila og ekkert er selt áfram.
Réttindi þín
Þú getur beðið um að fá að vita hvaða upplýsingar ég hef um þig, fengið þær leiðréttar eða beðið um að þeim verði eytt. Sendu einfaldlega póst á netfangið hér að neðan.
Breytingar
Ef ég bæti við mælingum eða annarri þjónustu sem safnar upplýsingum verður þessari síðu breytt á sama tíma.